Íbúðarlán

Nú er búið að pína fólk með vaxtahækkunum til að taka sín íbúðalán í erlendri mynnt.  Það er oft rætt mikið um gengisáhættu í því sambandi.  En það sem hefur verið að ske undanfarið hjá Seðlabankanum með stöðugum hækkunum á stýrivöxtum er gengisáhættan ekki mikil því þessar hækkanir á stýrivöxtum sem ekkert lát virðist ætla að verða á næstunni, er Seðlabankinn stöðugt að styrkja íslensku krónuna.  Þar sem framundan eru kjarasamningar ætti það að vera krafa núna að fólk fái laun sín greidd í erlendri mynnt og þá þeirri sem íbúðarlán þess eru í, þá er gengisáhættan engin.  Fólk væri með því í raun að verðtryggja laun sín og geta tekið íbúðarlán á eðlilegum vöxtum.  Það á ekki að líða það að stöðugt sé hægt að traðka á hinu venjulega launafólki.  Hnefann í borðið og segja "Hingað og ekki lengra."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband