Staksteinar

Það hefur verið skemmtilegt að fylgjast með Staksteinum Morgunblaðsins undanfarið, en ég held að þessi dálkur sé skrifaður af ritstjóra blaðsins.  Lengi vel fjallaði þessi dálkur mest um eina persónu, sem, var Ingibjörg Sólrún Gísladóttir en nú er nær eingöngu skrifað um aðra konu sem einnig er öflugur stjórnmálamaður en það er Svandís Svavarsdóttir.  Suma dagana er Svandís lofuð fyrir allt sem hún segir eða gerir en næsta dag er kannski allt ómögulegt hjá Svandísi.  Ekki veit ég hvað Morgunblaðinu gengur til með þessum skrifum sínum en greinilegt er að í gegnum skrifin skín mikil öfund vegna þess að sjálfstæðismenn eiga ekki svona öflugan stjórnmálamann eins og Svandís er.  Morgunblaðinu er með þessu að takast að skrá nafn Svandísar svo rækilega í sögu stjórnmála á Íslandi að ekki verður það afmáð á næstu árum.  Því hefur oft verið haldið fram að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir væri eina konan sem kæmi til greina að verða forsætisráðherra Íslands, en nú hefur Mogganum tekist að breyta því viðhorfi fólks með því að benda á það dag eftir dag hversu mikilhæfur stjórnmálamaður Svandís Svavarsdóttir er og þar með að Svandís yrði örugglega fyrsta konan til að verða forsætisráðherra á Íslandi þegar hennar tími kemur, sem verður örugglega ekki langt að bíða eftir.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband