Kappakstur

HamiltonEinn af lögfræðingum McLarenliðsins fór fram á það fyrir áfrýjunardómstól Alþjóða akstursíþróttasambandsins (FIA) í dag, að Lewis Hamilton yrði færður fram í úrslitum Brasilíukappakstursins og þannig gerður að heimsmeistara ökuþóra í stað Kimi Räikkönen hjá Ferrari.

 

Ef menn geta ekki sætt sig við úrslit í íþróttum eiga þei ekki að taka þátt í þeim.  Svo einfalt er það, því alltaf er einhverr sem vinnur um leið og annar tapar.


mbl.is Lögmenn McLaren biðja um titilinn handa Hamilton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já gæti ekki verið meira sammála, held að Mclaren ætti frekar að reyna að styrkja sig í bílasmíði en réttarhöldum því ef þetta heldur svona áfram og þeir fá titilinn svona leggjast þeir bara í að þróa málsóknir en ekki kappakstursbíla :)

Jón Þ. Sig 15.11.2007 kl. 18:28

2 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég er þér algjörlega sammála þarna.

Jóhann Elíasson, 16.11.2007 kl. 14:45

3 identicon

Já, en það er líka alvanalegt í íþróttum að ef einhver svindlar þá er honum vikið úr keppni. Hvað með hjólreiðamennina í Tour de France sem nota lyf, á ekki að dæma af þeim titilinn þegar niðurstöður úr lyfjaprófi koma?? Munurinn á Hamilton og þessum 3 ökumönnum sem um ræðir var ekki mikill og með því að nota kaldara bensín fengu þeir aukinn kraft úr því.

Hitt er svo annað mál að það væri hræðilegt fyrir formúluna ef þetta mál breytti niðurstöðu heimsmeistarakeppninnar og Maclaren var bara nær að klúðra þessu eins og bjánar í Kína.

Kv. Eggert

Eggert Jóhannesson 16.11.2007 kl. 17:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband