Hvalveiðar

HvalirJapanski hvalveiðiflotinn heldur í nótt af stað frá Shimonoseki í Japan til Suðurhafa þar sem áformað er að veiða yfir 1000 hvali í vísindaskyni, þar á meðal 50 hnúfubaka, sem hafa ekki verið veiddir frá því á sjöunda áratug síðustu aldar. Verksmiðjuskipið Nisshin Maju, sem laskaðist í eldi á síðustu vertíð, hefur nú verið lagfært og fer með veiðiflotanum.

Gott framtak hjá Japönum og hlusta ekkert á einhverja vitleysinga í umhverfissamtökum.  Þetta eigum við íslendingar að gera líka.  Það er ekki nóg með að þessi ofverndun hvað sé að útrýma mörgum fiskistofnum heimsins heldur eru þessir verndarsinnar farnir að berjast gegn fiskveiðum almennt.  Hvað á fólk að borða sem byggir þennan heim ef allt á að vera friðað.  Eins má benda á alla loftlagsmengunina frá hvölum sem ekki er neitt smáræði sem þessar skepnur blása frá sér. 

Verður ekki næst að berjast gegn því að fólk borði kjöt?


mbl.is Japanar á leið á hnúfubakaveiðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Fannar frá Rifi

Jú reyndar vilja þau að eina sem við borðum séu gras og baunir. Þessi samtök sem nokkrir íslendingar styðja eru algjörlega á móti öllu fisk áti eða dýra áti. Reyndar er þetta lið á móti hverskyns nýtingu á dýrum. maður er reyndar farinn að halda að þetta lið yrði ekki ánægt fyrr en 95% af íbúum jarðar yrði lóað svona til þess að ná fram markmiðum þeirra. Sea Shepard eru hryðjuverka samtök.

Fannar frá Rifi, 17.11.2007 kl. 21:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband