Ferskur fiskur

Sjávarútvegsfyrirtæki á Nýfundnalandi og Labrador hafa komið sér upp nýrri leið inn á Evrópumarkað með fisk. Kanadískir fjölmiðlar hafa eftir Tom Rideout, sjávarútvegsráðherra Nýfundnalands, að einkafyrirtækið Fly Fresh Freight Inc. muni hefja flug með ferskar sjávarafurðir frá Gander til Íslands í dag.

Ætlum við nú að láta Kanadamenn nota okkur til að koma ferskum fiski bakdyramegin á markaði í ESB og keppa við okkar eigin útflutning á ferskum afurðum um leið og þeir nýta okkar tollfrelsi á þessum mörkuðum.  Hverskonar andskotans vitleysa er þetta.  Við eigum ekki að líða þetta og ef Kanadamenn vilja koma ferskum fiski á Evrópumarkaði eigum við ekki að aðstoða þá í að verðfella okkar vöru.  Með þessu erum við í raun að aðstoða þá við að vera í samkeppni við okkur.  Er þetta nú ekki fulllangt gengið í allri vitleysunni?


mbl.is Fiskur fluttur frá Kanada til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jú Kristinn, það er eins og við séum ákveðnir í því íslendingar að koma sjávarútveginum algerlega á botninn.

Jakob Falur Kristinsson, 17.11.2007 kl. 17:34

2 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Ég held nú strákar, að þetta geti aldrei gert neitt verra en að halda lífinu í einhverjum þorskkaupendum, sem annars færu í einhvern annan fisk, eða legðu bara upp laupana. Engan þorsk er að hafa héðan....?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 17.11.2007 kl. 22:46

3 Smámynd: Níels A. Ársælsson.

Íslendingar kendu kanadamönnum að vinna rækju.

Níels A. Ársælsson., 18.11.2007 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband