Straumlaust

Straumlaust er á Innri-Akraneslínu í Hvalfirði, en rafmagn fór af línunni um kl 13 þegar grafa fór í línuna. Vinnuflokkur Rarik frá Borgarnesi vinnur nú að viðgerð og er áætlað að rafmagn komist aftur á eftir 1-2 klst, segir í tilkynningu frá dreifisviði RARIK Vesturlandi.

Svona mistök eiga ekki að geta átt sér stað.  Hvernig getur grafa farið í loftlínu nema fyrir algert kæruleysi.  Ber enginn ábyrgð á svona hlutum er bara nóg að segja afsakið, rafmagnið kemur aftur. 


mbl.is Straumlaust á Innri-Akraneslínu í Hvalfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þú ert blautur bak við eyrun ef þú heldur að svona óhöpp geti ekki gerst

Sveinn 17.11.2007 kl. 21:24

2 Smámynd: Sævar Finnbogason

Einsog Sveinn sagði geta svona óhöpp gerst. Það er þó mun algegngara að jarðstrengir fari í sundur. en hitt getur gerst þegar verið er að vinna í við og undir þessum línum.

Sævar Finnbogason, 17.11.2007 kl. 23:04

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er nú varla verið að vinna við þessar línur með fullum straumi á, en hitt er alveg rétt að óhöpp geta oft átt sér stað, en oft er það nú vegna þess að eitthvað kæruleysi kemur við sögu.

Jakob Falur Kristinsson, 17.11.2007 kl. 23:59

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég ætla einnig að benda á að þessi lína í Hvalfirðinum er háspennulína með nokkur þúsund volta spennu og ef grafa rekst í slíka línu eru þess dæmi að straumurinn hefur brætt dekk á gröfum og við það myndast jarðsamband og allur straumurinn fer í gegnum gröfuna og til jarðar en einhver er að vinna við gröfuna verður viðkomandi fyrir alvarlegu slysi eða jafnvel lætur lífið og ekki er hægt að líkja þessu saman við ef grafa slítur óvart jarðstreng innanbæjar, þá er spennan ekki nema 230-240 volt og ekkert alvarlegt skeður, aðeins slær út rafmagninu.   Varðandi fréttina úr Hvalfirði er ekki getið um neitt slys á mönnum, svo þetta er svolítið skrýtið.

Jakob Falur Kristinsson, 18.11.2007 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband