Sættir

Nú hefur borgarráð Reykjavíkur samþykkt að láta ógilda samruna REI og Geysis Green Energy.  Nú á REI einungis að vera fjárfestingarfélag í eigu Orkuveitu Reykjavíkur og mun vera ætlunin að bjóða Geysir Green allar eignir REI til kaups.  Jafnframt þessu hefur hefur borgarráð beint þeim tilmælum til stjórnar Orkuveitunnar um að reyna að ná sáttum við Svandísi Svavarsdóttur í máli því sem hún höfðaði gegn Orkuveitunni til að fá sameiningarfund REI og Geysis Green dæmdan ólöglegan og hefur Hjörleifi Kvaran forstjóra OR verið falið að leita eftir sáttum í málinu við Svandísi.

Alltaf tekur þetta REI-mál á sig fleiri undarlegar myndir.  Svandís Svavarsdóttir samþykkir sem sagt í borgarráði að OR leyti eftir sáttum við hana sjálfa.  Ég verð nú að viðurkenna að nú er ég algerlega hættur að skilja þetta mál.  Svandís er fyrst búinn að taka þátt í að ógilda samruna REI og Geysis Green og mætti þá ætla að hann væri úr sögunni.  Nei þá þarf forstjóri OR að leita eftir sáttum við Svandísi í máli sem snýst um sameiningu þessara fyrirtækja, sem hún sjálf er búinn að taka þátt í að ógilda.  Væri ekki einfaldast fyrir Svandísi að draga kæruna til baka og málið væri úr sögunni.  Hvað á þessi skrípaleikur að þýða?  Verður kannski næst sem upp kemur að Svandís neitar öllum sáttum?  Hvað gerir borgarráð þá?  Þetta er að verða einskonar spennuþáttur, nýtt efni í hverri viku.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband