Hlutabréf

Hlutabréf hafa haldið áfram að lækka í verði í Kauphöll Íslands í dag. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1% í dag. Mest hefur gengi bréfa Exista lækkað, eða um 3,65%, bréf FL Group hafa lækkað um 1,9%, SPRON um 1,75%, Landsbankans um 1,23% og Kaupþings um 1%.

Þetta er ekkert búið ennþá og spurning hvenær félög fara að leysast upp.  Það virðist ekki langt í það ef þetta heldur áfram og oft virðist erfitt að stoppa svona fall þegar það byrjar á annað borð.  Og það er ekkert skrýtið því sum félög hafa verið að tapa nokkrum tugum milljarða á fjárfestingum erlendis.  Þannig að útrásin er ekki alltaf ávísun á hagnað.


mbl.is Hlutabréf halda áfram að lækka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nú er FL Group á markaði og miðað við það mikla tap sem þeir hafa orðið fyrir og það heldur áfram að tapa stórum upphæðum , hlýtur sá dagur að koma að þeir geti ekki greitt af sínum lánum.  Gengi bréfa í þessu félagi hlýtur að endurspegla stöðu þess og ef markaðsvirði þess er sama sem ekkert ber þeim skylda samkvæmt lögum að lýsa félagið gjaldþrota þ.e, ef eignir duga ekki fyrir skuldum.  Þótt félagið sjái kauptækifæri í eigin bréfum, veit ég ekki hvernig þeir gætu greitt þau.  Varla myndi nokkur aðili lána félagi peninga til að kaupa nánast verðlaus bréf.

Jakob Falur Kristinsson, 23.11.2007 kl. 07:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband