Krónubréf

Þýski bankinn Rentenbank gaf út svonefnd krónubréf, skuldabréf í íslenskum krónum, fyrir fjóra milljarða í gær en slík útgáfa hefur verið með daufasta móti undanfarið. Fram kemur í Morgunkorni Glitnis, að Rentenbank hafi alls gefið út krónubréf fyrir 15 milljarða en þar af eru 11 milljarðar enn útistandandi. Alls eru krónubréf að nafnvirði 371,5 milljarðar útistandandi sem nemur um það bil 30% af landsframleiðslu síðasta árs.

Nú fer hver að verða síðastur til að græða á svona bréfum því allt bendir til að brátt komi til að íslensa krónan taki stóra dýfu niður á við og það svo um munar.

Ansi er ég hræddur um að áramótaávarp forsætistráðherra um næstu áramót verð ekki á neinum bjartsýnisnótum í þetta sinn.


mbl.is Ný krónubréfaútgáfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Eitthvað er ég hræddur um að þú misskiljir krónubréfaútgáfuna Jakob minn. Ef krónubréfin eru gefin út núna, en það eru erlendir aðilar sem kaupa bréfin, og krónan fellur þá tapa þeir hinir sömu peningunum sínum. Svo einfalt er það nú. Áhættan af falli krónunnar er nánast að öllu leyti hjá erlendum fjárfestum(kaupendum bréfanna) og er þeirra von að gengið haldist óbreytt eða styrkist, þannig græða þeir.

 Kv.Krossarinn

Krossarinn 22.11.2007 kl. 23:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband