Kvótakerfið

Vatneyrarmálið dómtekið í Hæstarétti á sínum tíma. Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf hefur áður fjallað um mál sem tengjast íslenska fiskveiðistjórnunarkerfinu en árið 2003 vísaði nefndin frá kæru Björns Kristjánssonar, fyrrverandi skipstjóra, á hendur íslenska ríkinu. Björn taldi í kæru sinni að Ísland hafi brotið gegn Alþjóðasamningi um borgaraleg og stjórnmálaleg réttindi þegar Hæstiréttur sakfelldi hann í svonefndu Vatneyrarmáli árið 2000.

Þótt þessari kæru hafi verið vísað frá, þá kvað Mannréttindanefnd Sameinu Þjóðanna upp annan dóm í gær og þar segir; "Að mati Mannréttingarnefndar Sameinuðu þjóðanna veita öll kvótakerfi sem notuð eru til að stjórna aðgangi að takmörkuðum auðlyndum, kvótahöfum að sumu leyti forréttindi á kostnað annarra, án þess að slíkt þurfi að vera óréttlátt.  Nefndin telur að kerfið brjóti gegn ákvæði sem bannar mismunun en svipað ákvæði er í Stjórnarskrá Íslands.  Nefndin telur að það sé lögmætt markmið stjórnvalda að vernda fiskistofna með kvótakerfi í fiskveiðum, en hins vegar hygli kerfið þeim sem upphaflega fengu úthlutað varanlegum kvóta og það byggist ekki á sanngirni." 

Ég fæ ekki betur séð að með þessu sé Mannréttindanefnd Sameinuðu Þjóðanna nánast að kveða upp dauðadóm yfir núverandi kvótakerfi og þótt sjávarútvegsráðherra segi nú að þetta álit sé ekki bindandi fyrir íslensk stjórnvöld hlýtur hliðstætt ákvæði í Stjórnarskrá Íslands að vera það.  Einnig er alvarlegt ef íslensk stjórnvöld ætla ekki að fara eftir alþjóðalögum sem þau hafa skuldbundið sig til að gera og nú þegar Ísland er að sækjast eftir aðild að Öryggisráði Sameinuðu Þjóðannar er eins gott að gleyma því máli ef við ætlum ekki að fara eftir áliti sem ein af stofnunum þeirra samtaka sendir frá sér.


mbl.is Mannréttindanefnd SÞ vísaði frá kæru vegna Vatneyrarmálsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband