Gögnum eytt

Fulltrúar Hvíta hússins í Washington hafa staðfest að líklega hafi öryggisuppfærslu af tölvugögnum frá fyrri hluta valdatíðar Bush Bandaríkjaforseta verið eytt og að líklega hafi afrit af bréfum sem tengjast upplýsingaleka varðandi starfsmanna bandarísku leyniþjónustunnar CIA verið þeirra á meðal.

Það er greinilegt að Bush ætlar ekki að skilja neitt eftir í Hvíta húsinu sem er honum óþægilegt þegar hann lætur af störfum og er nú hamast við að moka öllum skítnum út og eyða.  Hann má þó eiga það karlgreyið að reyna að hreinsa til eftir sig.  En það er alveg sama þótt þessum gögnum verði eytt, þá standa verk Bush eftir og af þeim mun hans verða minnst sem forseta Bandaríkjanna um ókomna framtíð.  Ég held að aldrei hafi aumari og heimskar maður setið á forseta stól í þessu ríki en George W. Bush.  Annars er lýðræðið svolítið einkennilegt í þessu mesta lýðræðisríki heimsins og kosningarfyrirkomulag stór skrýtið.  Fyrst fara fram svokallaðar forkosningar þar sem valdir eru frambjóðendur eða svo á víst að heita en í raun eru valdi kjörmenn í hverju ríki sem síðan kjósa um frambjóðendur í hvorum flokki og þá taka loksins við hinar eiginlegar forsetakosningar, en allt þetta flókna ferli gerir það að verkum að hinn venjulegi kjósandi hefur ekki mikinn áhuga á forsetakosningunum og er því kosningaþátttaka mjög lítil miðað við önnur lönd varla meira en 40-50%, þannig að í raun og veru hefur sá aðili sem að lokum sigrar lítinn hluta kjósenda á bak við sig, kannski 20-25% ef það nær svo hátt.


mbl.is Tölvugögnum Hvíta hússins líklega eytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband