Framsókn

Stjórn Kjördæmasambands Framsóknarflokksins í Reykjavík segir í yfirlýsingu, að trúnaðarbréf, sem Guðjón Ólafur Jónsson, fyrrverandi alþingismaður sendi framsóknarmönnum í Reykjavík í pósti, hafi verið vanhugsað og alls ekki flokknum og starfinu í Reykjavík til framdráttar.

Mikið ætlar lífið að verða framsóknarmönnum erfitt þessa daganna.  Guðjón Ólafur Jónsson skrifar bréf til flokksmanna og þykist vera að efla flokkinn.  Eitthvað hefur nú Guðjón Ólafur hugsað þetta rangt, því að í bréfinu er hann að rægja einn af forustumönnum flokksins Björn Inga Hrafnsson og lætur að því liggja að Björn Ingi hafi notað sjóði flokksins til fatakaupa á sig ofl. fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar.  Ef Guðjón Ólafur heldur virkilega að svona skrif séu til þess fallinn að styrkja Framsókn, þá er greinilega eitthvað að manninum.  Það eina sem hugsanlega hefðist upp úr svona bréfasendingum væri það að Björn Ingi segði sig úr flokknum.  Er það kannski tilgangur Guðjóns Ólafs með þessu bréfi?  Ég er helst á þeirri skoðun að þessi skrif stafi af öfund vegna þess að Guðjón Ólafur datt út af þingi í síðustu kosningum.  Ef Guðjón Ólafur heldur virkilega að vandi framsóknar sé aðallega sá að hann er ekki lengur þingmaður þá er ofmat hans á sitt eigið ágæti mikið.  Ég sé ekkert eftir Guðjóni Ólafi sem þingmanni, því mér fannst hann alltaf með leiðinlegustu ræðumönnum á þingi meðan hann var þar og get ósköp vel skilið að fólk hafi ekki viljað hann þangað aftur.  En að senda út svona bréf uppfullt af rógi um Björn Inga ofl. er fyrir neðan virðingu hvers manns, jafnvel þótt viðkomandi sé framsóknarmaður. 


mbl.is Segja bréf til framsóknarmanna vanhugsað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband