Sjómenn

Konur eru innan við 10% sjómanna Konur eru í miklum minnihluta sjómanna en þær ná því sjaldnast að vera yfir 10% þeirra. Ástæðu þess að konur sækja ekki sjóinn í meira mæli en þær gera er einna helst að finna í menningarbundnum þáttum, það er að segja, í skiptingu vinnunnar í karla- og kvennastörf og takmörkuðum vilja fólks til að haga sér í ósamræmi við ímynd karlmennsku og kvenleika. Þetta er niðurstaða verkefnis sem Helga Katrín Tryggvadóttir nemi í mannfræði við HÍ hefur unnið.

Ætli sjómennska verði í frumvarpinu, sem á að jafna hlut karla og kvenna í þjóðfélaginu.  Hvar eru allir femínistarnir nú?  Eru það bara sum störf sem jafnræði á að gilda með kynjunum?  Eins og fram kemur í þessari könnun virðast konur ennþá vilja skipta störfum í karla- og kvennastörf.  En er þetta eitthvað að breytast?  Nei ég held ekki.


mbl.is Fáar konur sækja sjóinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Þær eru nú ekki að sækja í hvað sem er Jakob minn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.2.2008 kl. 08:40

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Af hverju ekki, það er einn af skipstjórum hjá Sæferðum í Stykkishólmi ung kona og mikið er hún nú glæsileg í skipstjórabúningnum.

Jakob Falur Kristinsson, 2.2.2008 kl. 10:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband