Kvótar

Kýr í fjósi Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, varpaði þeirri hugmynd fram á fundi Landssambands kúabænda um framtíð mjólkurframleiðslu að næsti samningur sem ríkið gerði við kúabændur yrði síðasti búvörusamningurinn. Samningurinn fæli í sér að ríkið keypti allt greiðslumark af bændum

Loksins kom maður og talaði af viti um þessa kvótastefnu sem hér tröllríður öllu.  Þetta ætti ekki bara að ná yfir kvótann í landbúnaði heldur einnig í sjávarútvegi.


mbl.is Ríkið kaupi kvótann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Alveg hárrétt hjá þér Jakob minn, og það er gott að þessi umræða er komin af stað.  Hún á eftir að rúlla betur, og verða vatn á myllu þeirra sem vilja kvótakerfið burtu sem allra fyrst.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.2.2008 kl. 08:39

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ef við ætlum að lifa í þessu landi þá bara verður það að gerast, það er ekki flóknara en það, Ásthildur.  Ég er t.d. ekki í nokkrum vafa um að íslenskir bændur hefðu það miklu betra og þeir ættu að sjá um alla sölu sjálfir á sínum vörum.  Lítil sláturhús í hverri sveit og afurðir merktar hverju búi og þannig kæmi samkeppni bæði í verðum og gæðum.  Ekki eins og nú er að slátra öllu í stórum húsum og kaupandinn veitt ekkert frá hverjum viðkomandi vara er.  Þetta væri líka hægt í sjávarútveginum og er reyndar byrjað í smáum stíl a.m.k. hjá þeim sem eru að senda ferskan unnin fisk út með flugi.

Jakob Falur Kristinsson, 2.2.2008 kl. 09:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband