Alltaf er hægt að finna eitthvað nýtt

Ég ætlaði ekki að trúa eigin augum þegar ég las um fréttir frá Glitnir en þar kom fram að núverandi forstjóri félagsins hefði fengi greitt 300 milljónir fyrir að byrja að vinna hjá bankanum.  Ég hef oft verið hneykslaður á mörgum hinna svokallaðra starfslokasamninga en þó skilið þá að sumu leiti því viðkomandi þarf einhver laun meðan hann er að leita sér að nýrri vinnu.  Hvað réttlætir þessa 300 milljóna greiðslu fyrir bankastjóra svo hann geti byrjað að vinna.  Ekki eru það launin því ég hef heyrt að laun þessa bankastjóra séu á milli 10-15 milljónir á mánuði.  En þetta var ekki það eina sem Glitnir þurfti að greiða vegna bankastjóraskiptanna, því Bjarni Ármannsson mun hafa fengið nokkur hundruð milljónir í starfslokasamning auk þess sem Glitnir varð að innleysa hlutabréf Bjarna samkvæmt kaupréttarsamningi og í það fóru 900 milljónir.  Þessi byrjunargreiðsla er ágæt innlegg í þær kjaraviðræður sem nú standa yfir og vonandi verður þetta yfirfært á flestar launastéttir.  Það er ekki slæmt að fá um tuttuguföld mánaðarlaun áður en viðkomandi byrjar í nýju starfi.  Það að stjórn Glitnis ákvað að skipta um bankastjóra hefur því kostað bankann hátt í 1,5 miljarða.  Siðblinda þessara manna er algjör í þeirra augum eru 100 milljónir svipaðar og 100 krónur í augum venjulegs fólks.  Þarna er verið að setja fordæmi sem ekki hefur þekkst fyrr í Íslandssögunni og næsta öruggt að þetta á eftir að breiðast út.

Sem sagt að til að hefja nýtt starf verður að byrja á að greiða væntanleg mánaðarlaun sinnum 20 og þá er hægt að byrja að vinna. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband