Bankar

Fjallað er um íslensku bankana í Lex-dálki breska viðskiptadagblaðsins Financial Times sl. föstudag og spurt hvort það sé nóg að hætta við ein viðskipti til þess að forðast fjármálakreppu.

Ég held nú að þessi erlendu blöð og álitsgjafar ættu að hætta þessari eilífu umfjöllun um viðskipti íslensku bankanna og líta sér nær og skoða fjármálaumhverfið í eigin löndun þar sem allt er í vandræðum.

Þetta er ekkert annað en öfund og aftur öfund yfir því hvað hinum íslensku bönkum hefur tekist vel að sigla gegnum allt það umrót og vandræði sem eru í dag á fjármálamörkum heimsins.


mbl.is Er nóg að hætta við ein viðskipti?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gísli Sigurðsson

Sæll Jakob og takk fyir að gerast bloggvinur minn. Ég ætla ekki að kommenta um þessa færslu þína heldur að ítreka spurningu mína síðan um daginn, þegar ég spurði þig hversu há heiði þyrfti að vera til að geta talist heiði. Þú varst að bera þetta saman við  heiðarnar fyrir vestan, en verðum við ekki bara að kalla það fjallvegi, þetta eru meira og minna hálsar bara upp og niður.

Gísli Sigurðsson, 4.2.2008 kl. 16:47

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég er í nokkrum vanda með að svara þessari spurningu vegna þess að fyrir vestan þar sem ég er fæddur og uppalinn og mitt viðmið tekið þaðan.  Það er alveg rétt hjá þér að mikið er þar um hálsa eins og nöfn þeirra bera með sér t.d. Hjallaháls, Ódrjúgháls, Klettháls ofl.  En heiði tel ég vera þar sem hæð er a.m.k. 200-300 metrar yfir sjávarmáli og aka þarf talsverða vegalengd áður en byrjað er að fara niður aftur, en þar sem bara er farið upp og ekið smá spotti og farið svo niður er auðvitað háls.  Hvað heiðarnar varðar get ég nefnt t.d. Kleifaheiði, Dynjandisheiði, Steingrímsfjarðarheiði, Hellisheiði ofl.

Jakob Falur Kristinsson, 5.2.2008 kl. 04:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband