Heddi frændi

Heddi frændi að sökkvaEikarbáturinn Heddi frændi sökk við bryggju á Hornafirði í nótt. Báturinn hefur verið bundinn við bryggju undanfarin ár en starfsmenn hafnarinnar hafa litið eftir honum og dælt úr honum með reglulegu millibili. Síðast var lestað úr honum fyrir tveimur vikum.

Þetta er einn af þessum vandræðaskipum sem víða liggja í höfnum landsins.  Ég hef bent á það áður í skrifum mínum hér á síðunni að á þessu er til einföld lausn.  Það á að taka öll þessi skip og ganga þannig frá þeim að engin hætta sé á mengun frá þeim og sökkva þeim síðan víðs vegar á fiskimiðunum og mynda þannig skjól fyrir fiskinn.  Það er staðreynd að þar sem skipsflök liggja víða á hafsbotninum er fiskur þar allt í kring.  Með nútímatækni eins og GPS-tækjum siglingaforritum er auðvelt að merkja þessi flök inná sjókort svo fiskiskip geti forðast að festa veiðarfæri sín í þeim.  Þetta yrði veruleg bót fyrir fiskinn í hafinu, því þegar hann fer að hrygna leitar hann alltaf að skjóli og nú þegar við erum búin að slétta svo mikið hafsbotninn með hinum öflugu togveiðarfærum fækkar stöðugt þeim stöðum sem fiskurinn finnur skjól.  Ég sá myndir þegar kafarar fóru niður að skoða flak Kolbrúnar ÍS sem sökk í einhverjum firðinum í Ísafjarðardjúpi, þá sást vel á myndunum að fiskur var syndandi allt í kringum flakið.


mbl.is Heddi frændi sokkinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er sammála að það eigi finna þessum vandræða skipum stað sem væri hægt að sökva þeim á og þá í tvennum tilgangi.

1. Er til að veita fiskum skjól til uppvaxtar eins og þú bentir á.

2. Á grynnra vatni gæti þetta orðið paradís fyrir kafara að skoða gamalt sokkið skip og fiskalífið í kring.

Gallinn er bara sá að það er bannað með lögum að sökva þessum skipum og ef mig minnir rétt þá eru það lög sem við urðum að taka upp eftir evrópusambandinu eða alþjóðalög. 

Lognið Stormsson 5.2.2008 kl. 11:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband