Hvalfjarðargöng

Í Hvalfjarðargöngum. Lögreglustjórinn á Akranesi hefur ákært karlmann fyrir að aka alls 40 sinnum í gegn um Hvalfjarðargöng án þess að greiða gangnagjaldið. Er maðurinn ákærður fyrir fjársvik og til vara nytjastuld.

Ekki finnst mér rétt að refsa manninum fyrir þetta, því þarna hefur eitthvað klikkað hjá rekstraraðilanum sem er Spölur ehf. og ættu þeir því bara að sitja uppi með þennan skaða ef þeir hafa þá nokkuð skaðast.  Að tala um fjársvik í þessu sambandi finnst mér fáránlegt.  Hvaða fé sveik þessi maður út?


mbl.is Ók 40 sinnum um Hvalfjarðargöng án þess að borga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helgi Jónsson

Ef þú rækir verslun og viðskiptavinur þinn labbaði með vörurnar fram hjá kassanum án þess að borga, mætti hann þá eiga vörurnar ef þú tækir ekki eftir honum fyrr en hann væri kominn út úr búðinni?

Helgi Jónsson, 5.2.2008 kl. 19:55

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þetta er nú ekki hliðstætt dæmi og út í hött að bera þetta saman.  Eini skaðinn, sem Spölur ehf. varð fyrir eru huganleg slit á veginum í þessum göngum og ekki hefur það verið mikið í 40 ferðum.  Hins vegar er ég þeirrar skoðunar að það eigi að vera frítt fyrir alla að aka þarna í gegn, eins og er á öllum þjóðvegum landsins.  Það tekjutap ætti Spölur síðan að fá endurgreitt frá ríkinu.

Jakob Falur Kristinsson, 6.2.2008 kl. 08:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband