Sjálfstæðismenn í vanda

Nú eru Sjálfstæðismenn heldur betur í vanda og allt vegna Vilhjálms Þ. Vilhjálmssonar, sem virðist ætla að þrjóskast við að segja af sér.  Heldur halda áfram að reyna að kjafta síg frá REI-klúðrinu og veða oft tvísaga og stundum hreinlega að ljúga, alltaf að biðjast afsökunar eða fyrirgefningar.  Á meðan týnist fylgið hægt og rólega af sjálfstæðisflokknum.  Hver mistökin eftir annað og allt á kostnað flokksins, Vilhjálmi er auðvitað andskotans sama, því hann veit að hans möguleikar til framboðs í næstu kosningum eru engir.  Það skynsamlegasta sem sjálfstæðismenn gerðu núna væri að slíta núverandi meirihluta og láta svokallaðan Tjarnarkvartett taka við og nýta næstu tvö árin til að byggja upp fylgið og láta Hönnu Birnu taka við forustu í borgarstjórnarflokknum.  Þá fyrst ættu þeir mikla möguleika á að fá aftur hreinan meirihluta í borginni en óbreytt ástand þýðir mikið fylgishrun sjálfstæðismanna í næstu kosningum ef þeir gera ekkert róttækt í sínum málum nú.  Ef þeir biðu nú aðeins í tvö ár og endurskipulegðu sitt starf og fylgi væri í næstu kosningum komin tveir skýrir valmöguleikar sem kosið yrði um.  Þá gætu sjálfstæðismenn farið í meirihlutastarf með stolti, með hverjum sem er, ef þeir fengju ekki hreinan meirihluta sem væri mjög líklegt.  Er virkilega enginn með fullu viti í þessum borgarstjórnarflokki sjálfstæðismanna og hafa þeir ekki einhverja framtíðarsýn?

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband