Flugslys

Þyrla Landhelgisgæslunnar TF Gná Leit stendur yfir um 50 sjómílur vestur af Reykjanesi að tveggja hreyfla flugvél sem fór þar í hafið eftir að hafa misst báða hreyflana um klukkan 16 í dag. Einn maður var um borð. Landhelgisgæslan sendi þyrlu til móts við vélina.

Þetta eru hræðilegar fréttir og litlar líkur á að sá sem var í flugvélinni sé á lífi.  Þótt hann hafi komist út úr vélinni áður en hún sökk er kuldinn ísjónum svo mikill að þar lifir enginn  nema í nokkrar mínútur.


mbl.is Leitað að flugvélinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir

Æ - ég fæ alltaf hnút í magann við svona fréttir.

Jóhanna Magnúsar- og Völudóttir , 11.2.2008 kl. 17:59

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Það er alltaf sorglegt að heyra um slys af hvaða toga þau eru.
                           Kveðja Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 11.2.2008 kl. 18:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband