Villi heldur áfram

Nú hafa sjálfstæðismenn í borgarstjórn tekið eina af sínum vitlausustu ákvörðunum til þessa og var nú ærið fyrir.  Þeir ætla að styðja Vilhjálm áfram sem oddvita borgarstjórnarflokksins og þá væntanlega sem borgarstjóra eftir 14 mánuði.  Gamli góði Villi telur að hann sé búinn að axla sína ábyrgð á öllu sínu klúðri með því að gefa eftir borgarstjórastólinn og þar með sé allt í lagi hjá sér.  Ég hef fram að þessu litið á Vilhjálm sem heiðarlegan og góðan stjórnmálamann en nú sé ég ekki betur að maðurinn er bjáni og refur í þokkabót.  Hann átti auðvitað að segja af sér og yfirgefa stjórnmálin með reisn en ekki halda áfram að berjast við vindmillur og gera sig að fífli eins og stefnan er í dag.  Auðvita standa sjálfstæðismenn í borgarstjórn með honum núna, því þeir vita að í næstu kosningum verða þau endanlega laus við hann.  Því ekki þýðir fyrir Vilhjálm að reyna að fara í framboð aftur.  Heldur þetta fólk virkilega að kjósendur í Reykjavík verði búnir að gleyma öllu þessu í næstu kosningum.  Með þessari ákvörðun eru borgarfulltrúarnir búnir að ákveð að Sjálfstæðisflokkurinn verð hér eftir lítill áhrifalaus stjórnmálaflokkur í Reykjavík og fær aðeins stuðning örfárra íhaldsmanna sem kjósa flokkinn bara af gömlum vana.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband