Að endurvinna traust

Eitt af því sem Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segist ætla að gera nú, er að endurvinna traust borgarbúa.  En eru hlutirnir bara svona einfaldir að eftir að hafa klúðrað REI-málinu og verða síðan margsaga í tilraunum til að kjafta sig frá málinu er alt traust farið.  Heldur Vilhjálmur að það sé bara nóg að koma nú og segja;  "Fyrirgefið mér, ég lofa að gera þetta ekki aftur."  Sá sem er rúinn öllu trausti er langan tíma að vinna það til baka og ég efast um að það sem eftir er af núverandi kjörtímabili dugi ekki til.  Svo Reykvíkingar munu sitja uppi með sakleysingjann Ólaf F. Magnússon sem borgarstjóra með sitt dýrmæta skjal sem á er letrað 17 atriði,fram að næstu kosningum.  Þá fyrst kemur i ljós hvort Vilhjálmi hafi tekist að endurvinna þetta traust sem hann er að ræða um núna, fyrr ekki.   Þetta mun verða einsdæmi í sögu Reykjavíkurborgar að maður frá flokki sem enginn kaus skuli vera borgarstjóri.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

"Þetta eru asnar Kobbi". Held nú raunar að þetta verði eins og þú segir hér á undan og það er fjandi gott. Það er allavega ekki hætta á að þeir Láfi og leifarnar af xD verði kosnir aftur til að gera neitt. Held raunar að hann Láfi litli fari bara í að lækna sjúka og hans sögu í pólitík verði þar með lokið...?

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 12.2.2008 kl. 15:35

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Farið hefur fé betra

Jakob Falur Kristinsson, 12.2.2008 kl. 15:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband