Svara athugasemdum

Íbúðalánasjóður Íslensk stjórnvöld munu skila Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) athugasemdum í tengslum við Íbúðalánasjóð innan mánaðar. Í tilkynningu frá félagsmálaráðuneytinu kemur fram að verði það niðurstaða ESA að um ólögmæta ríkisaðstoð hafi verið að ræða getur það leitt til þess að stjórnvöld þurfi að endurkrefja Íbúðalánasjóð um þá fjárhæð sem þessari ríkisaðstoð nemur frá 1998

Þurfum við nokkuð að taka mark á þessu frekar en áliti Mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna um íslenska kvótakerfið.  Við erum sjálfstæð þjóð og þótt við höfum undirritað einhverja samninga eða sáttmála gerum við bara það sem okkur sýnist og hættum að hlusta á svona kjaftæði erlendis frá.  Flestar þessar undirskriftir hafa átt sér stað í koktilboðum erlendis og því ekki marktækar. 

Það verða þessir aðilar að skilja sem eru að finna að okkar stjórnkerfi, sem fornir víkingar segjum við þeim bara að steinhalda kjafti.


mbl.is Stjórnvöld svara ESA innan mánaðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband