Ekki til

Mynd 447378Sextán ára gömul stúlka sem hefur búið í Essex í Bretlandi alla sína ævi hefur verið sagt að því miður sé hún ekki til. Jade Jacobs-Brooks, sem á ekkert fæðingarvottorð né vegabréf, á engan möguleika að sanna hver hún er vegna mistaka sem urðu er hún fæddist í sumarleyfi foreldranna á Spáni.

Aumingja stúlkan að lenda í þessu en svona getur nú kerfið klikkað og slík mistök er oft erfitt að fá leiðrétt.  Hún er heppinn að vera ekki á Íslandi, því við tökum hart á svona málum og vafalaust myndi Útlendingaeftirlitið kosta fyrir hana ferð til tunglsins því ekkert land getur tekið við henni.  Mig minnir að bloggvinkona mín, Áshildur Cesil Þórðardóttir á Ísafirði hafi staðið í einhverjum deilum við yfirvöld því hennar nafn er ekki viðurkennt af einhverri nefnd sem úrskurðar um nöfn á fólki.  Kannski er hún ekki til heldur eða hvaða?


mbl.is Því miður þú ert ekki til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband