Ekki bara Mest

að var ekki bara fyrirtækið Mest sem Glitnir hirti bestu molana frá upp í skuldir.  Nú hefur verið byrjað að hrærara í eignasafni Hannesar Smárasonar og Landsbankinn hefur tekið Oddaflug ehf. sem nú heitir EO-fjárfestingarfélag en aðaleign þess félags er í félaginu Stoðum sem aftur á stóran hluti í Baugi.  Þá hefur Byr-sparisjóður tekið frá Hannesi félagið Prímus sem nú heitir FI-fjárfesting en helstu eignir þess félags eru stór hlutur í Húsasmiðjunni, stór hlutur í  Apple-umboðinu, og í Hótel Búðum og talsverður hlutur í Byr.  Er því búið að hirða af Hannesi mest af hans eignum í fyrirtækjum.

Því er spáð að slíkum atburðum eigi eftir að fjölga mjög á næstu mánuðum að bankar hirði bestu molana úr hverju fyrirtækinu á eftir öðru og þeir sem fyrir nokkrum síðan voru taldir vera moldríkir menn, sem gætu gleypt allt það sem þá langaði í, séu nú fátæklingar.

Það hefur verið í fréttum að talsverður samdráttur hefur orðið í smásöluversluninni en stórmarkaðirnir ætli að bíða fram yfir verslanamannahelgi með hópuppsagnir.  Enda væri það álitshnekkir fyrir alla verslun ef hópuppsagnir væru rétt fyrir verslunarmannahelgi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jakob.

Þetta er bara upphafið og eiga bankamenn eftir að fá fleiri eignir í hausinn en þeir vilja og ráða við vegna svikna loforða.

Baráttukveðjur/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 23.7.2008 kl. 13:26

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já Rósa þetta er rétt að byrja og mér finnst nú bankarnir taka einkennilega á málum til að fá skuldir greiddar.  Með því að hirða aðeins bestu molana of skilja skuldara eftir með hitt verður til þess að ekkert verður hægt að borga af neinu láni.  Bankarnir eiga annað hvort að taka allt eða ekkert.

Jakob Falur Kristinsson, 23.7.2008 kl. 14:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband