Gömul skip

Skipin tvö í Akureyrarhöfn.Tvö af af elstu skipum Samherja komu nýlega úr sinni síðustu veiðiferð eftir langan og farsælan feril hjá félaginu. Eru þetta Norma Mary, áður Akureyrin EA-110, og Víðir, áður Apríl HF. Skipin stunduðu bæði bolfiskveiðar og ár eftir ár hafa þau verið meðal þeirra íslensku skipa sem skilað hafa mestu aflaverðmæti.

Þetta eru að verða örlög okkar skuttogaraflota sem eitt sinn taldi yfir 100 skip eitt af öðru fara þau í brotajárn en sem betur fer hefur Samherji hf. verið kraftmikill í að endurnýja sinn flota og þetta mun vera liður í því.  Síðan eru margir aðrir togarar bundnir við bryggju vegna kvótaleysis og hins háa olíuverðs.  Ég held að þetta háa olíuverð leiði til þess að skuttogaraútgerð leggst af á Íslandi. á komandi árum.


mbl.is Síðasta veiðiferðin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef ég fer með rétt mál að þá var annað þessara skipa notað í þorskastríðinu og þóttu góð sjóskip.

Bjössi

Bjössi 23.7.2008 kl. 16:07

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já Víðir EA hét upphaflega Ver AK og var notaður í síðasta þorskastríði.  Þessir pólsku togarar hafa þótt mjög góð sjóskip og sterklega byggð.  Það var líka annar eins pólskur togari notaður en það var Baldur EA sem seinna varð Skutull ÍS og nú Eldborg og er skráð í Tallin en í eigu íslendinga.

Jakob Falur Kristinsson, 23.7.2008 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband