Megrun

Eitt þúsund Íslendingar borða megrunarlyf fyrir 44 milljónir á ári. Vinsælustu lyfin eru Xenical, Acomplia og Reductil en mánaðarskammtur kostar á bilinu sjö til sextán þúsund krónur. Karlar eru í meirihluta þeirra sem fá lyfin.

Ég hef ekki mikla trú á þessum megrunarlyfjum og að eyða 44 milljónum í þessa vitleysu og að Tryggingastofnun skuli greiða 60% af kostnaði er til skammar.  Fólk á bara að hreyfa sig meira.  Besta megrun sem ég hef fengið var þegar ég byrjaði sjómennsku 1997 eftir rúma 20 ára skrifstofuvinnu og lítillar hreyfingar. ´

Ég var 85 kg. en eftir 3-4 mánuði á sjónum var ég orðin rúm 60 kg.


mbl.is Megrun fyrir 44 milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tryggingastofnun greiðir um fjörutíu prósent af þessum kostnaði. 

Rétt skal vera rétt.

Guðný 24.7.2008 kl. 16:25

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll og blessaður.

Sennilega er þetta lyf að bjarga því að ég þarf ekki að fara í hjáveituaðgerð sem er líka dýr. Ég er virkilega hamingjusöm með það ef ég næ með tilkomu Reductil að sleppa við háveituaðgerð.

En dýrt er Drottins orðið. Því er ég sammála.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 24.7.2008 kl. 16:32

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Guðný , ég las ranga tölu í fréttinni þetta eiga að vera 40%.  Ef þetta gerir gagn þá er það af hinu góða en oft er nú með svona lyf að trúin á þau hafa meiri áhrif en lyfið sjálft og fólk fer að hafa sínu lífi öðruvísi án þess að það taki beint eftir því sjálft.  Hreyfir sig meira og borðar öðruvísi mat ofl.

Jakob Falur Kristinsson, 24.7.2008 kl. 17:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband