Leikföng

Mynd 474539Um fimmtán fastráðnir starfsmenn og annað eins af lausráðnu starfsfólki misstu vinnuna þegar tveimur leikfangaverslunum Just 4 Kids var lokað fyrir verslunarmannahelgi. Þar með lauk umfangsmiklum en skammvinnum rekstri þessarar íslensku verslanakeðju.

Þá er hrunið að byrja enda var augljóst að þessi risaverslun í Garðabæ gæti aldrei lifað lengi, því skammt frá eða í Smáranum er svipuð risaverslun með leikföng.  Nú styttist í að hin þýska byggingarvöruverslun sem verið er að byggja í Mosfellsbæ, opni og þá mun þrengja verulega að BYKO og Húsasmiðjunni, því mikill samdráttur er á byggingarvörumarkaðinum.  Þessi þýska verslun er með svo sterkt bakland að hún getur komið öllum keppinautum á hausinn ef þeir vilja.  Það mun líka vera orðið alvarlegt ástand hjá bæði Ingvari Helgasyni hf. og Heklu og er róinn lífróður að forða þeim frá gjaldþroti.  En bæði þessi fyrirtæki skiptum um eigendur fyrir einu eða tveimur árum og var þar um að ræða skuldsetta yfirtöku nýrra eiganda.


mbl.is Leikfangakeðja úr sögunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þetta leikfangabúðaæði, sem gekk hér yfir var líka alveg út í Hróa, ekki skrítið að þeir leggi upp laupana, margur Íslendingurinn tók líka þátt í þessar bölvuðu vitleysu, hef aldrei í þessar búðir komið. Techy

Ásdís Sigurðardóttir, 5.8.2008 kl. 11:46

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það uppsker hver eins og hann sáir.

Jakob Falur Kristinsson, 5.8.2008 kl. 12:00

3 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jakob.

Leikfangaæðið var útí Hróa Hött. Sammála Ásdís með það og það er slæmt þegar ein búðin enn kemur með byggingavörur. Það verður þungur róður hjá Byko og Húsasmiðjunni því ábyggilega er þessi stóra verslun ekki á brauðfótum.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 5.8.2008 kl. 18:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband