08.08.08.

Þá er þessi merkisdagur runnin upp, en ég ætla ekki að vera með neitt sérstakt á þessum degi, nema að fylgja minni fyrrverandi tengdamóður síðasta spölinn hér á jörð.  Hún náði því þó að lifa sinn síðasta afmælisdag en hún varð níræð 1. ágúst sl.

Hinsvegar ætla ég að vera með mikla athöfn á næsta ári.  Þá ætla ég að gifta mig þann 09.09.09.  Talan níu hefur líka talsvert gildi fyrir mig og er mín happatala.  Ég er fæddur 9. febrúar og amma mín var fædd 9. maí.  Þá hefur mitt bindindi staðið í þrjú og hálft ár og ætli ég haldi ekki upp á daginn með því að detta hraustlega íða.LoLLoLGrinGrinLoL


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Ertu búinn að finna þá réttu??? Flott áform og það væri alveg frábært ef þú finnur almennilega konu. Einn bloggvinur minn er að fara að gifta sig í dag. Hann er Vopnfirðingur en búsettur í Kanada. Flott dagsetning hjá honum og 09 09 09 líka en þá á bróðir minn afmæli.

Gangi þér vel að veiða í netið þitt.

Guð blessi þig og hressi

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 8.8.2008 kl. 11:04

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sem fyrrverandi skipstjóri og vélstjóri er ég vanur öllum veiðum.  Það er bara að leggja netið á réttan stað og það klára ég alveg.

Jakob Falur Kristinsson, 8.8.2008 kl. 20:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband