Dýrt bílnúmer

RonaldoÞað mun hafa kostað kvennaljómann og knattspyrnugoðið portúgalska, Christiano Ronaldo, um 22 milljónir króna að eignast einkanúmer á bílinn sinn.

Þetta er nú nokkuð mikið fyrir eitt bílnúmer, en skiptir kannski ekki máli ef nægir peningar eru til og ekkert þarf að spara. 

Þetta sýnir okkur vel út í hvaða rugl og vitleysu laun knattspyrnumanna erlendis eru komin.


mbl.is Ronaldo eignast bílnúmer
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já vegir peningahyggjunnar eru órannsakanlegir Jakob minn. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.8.2008 kl. 10:11

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sammála, Ásthildur.

Jakob Falur Kristinsson, 25.8.2008 kl. 10:25

3 identicon

Ég var nú að vinna í Frumherja í sumar og þar var einn sem keypti einkanúmer (ég vill ekki gefa einkanr upp en það er kvennmannsnafn) af öðrum sem átti réttin af því á 200.000 svo kostar það hann 25.000 að láta skrá það á sig hjá Umferðastofu. Hann ætlar að gefa konunni sinni það í jólagjöf. Góðærið búið?? held ekki..

(Til frekari upplýsinga þá kostar einkanr á Íslandi 31.000 inn í því eru plöturnar og rétturinn til að hafa einkanumeið í 8.ár)

Helga Finnsdóttir 25.8.2008 kl. 22:34

4 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Bílnúmer er nú örugglega eitt af því síðasta sem ég eyði pening í.  Kær kveðja Kobbi minn. Hvenær ætlar þú á Eyjaslóð ? ég verð þar um hálf tólf á morgun með fullan bíl.  Kveðja

Ásdís Sigurðardóttir, 26.8.2008 kl. 00:11

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ásdís mín, það eru próf hjá mér þann 28.08.08.  Ég verð því að nýta tíman vel til að undirbúa mig í dag og á morgun.  Svo ég kemst ekki fyrr en eftir prófið þ.e. á næsta föstudag.

Jakob Falur Kristinsson, 26.8.2008 kl. 10:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband