Nýfætt barn

Nýfætt barn fannst látið á endurvinnslustöð í Cambridgeskíri í morgun og hefur lögregla lokað svæðinu af, samkvæmt frétt á vef breska blaðsins Times. Voru það starfsmenn endurvinnslustöðvarinnar sem fundu barnslíkið innan um rusl á stöðinni sem er í bænum Peterborough. Að sögn lögreglu er unnið að rannsókn málsins og ekki hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

Hverskonar foreldrar gera svona hluti, ég hef aldrei heyrt annað eins.  Ef þau vildu ekki barnið þá hefði verið auðvelt að koma því í fóstur.  Þetta er alger villimennska af verstu gerð.  Ég veit ekki hvað á að gera við svona fólk ef það finnst?


mbl.is Barnslík finnst í breskri endurvinnslustöð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tinna Gunnarsdóttir Gígja

Tökum tilbúið dæmi (öfgafullt en á sér því miður stoð í raunveruleikanum);

Þú ert 11 ára gömul stúlka. Þér er nauðgað og þú verður ólétt. Þú veist ekki hvað er að gerast og þorir ekki að segja neinum frá því. Einn daginn færðu verki, þér blæðir og eitthvað blóðugt og ógeðslegt kemur út úr þér. Þú ert í sjokki, áttar þig á því að þetta er barn, en það andar ekki. Þú panikkar, þrífur upp blóðið og losar þig við sönnunargögnin á næsta hentuga stað - í ruslatunnuna.

Er það dæmi um villimennsku?

Tinna Gunnarsdóttir Gígja, 27.8.2008 kl. 13:19

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei ekki eins og þú stillir dæminu upp.

Jakob Falur Kristinsson, 28.8.2008 kl. 00:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband