Arður

Hagnaður Alfesca á síðasta rekstrarári, sem endaði í lok júní, jókst um 28%. Nam hagnaðurinn 28,6 milljónum evra samanborið við 22,4 milljónir evra árið á undan. Jafngildir það um 3,5 milljörðum króna. Salan jókst um 9% á rekstrarárinu og nettóskuldir minnkuðu um 25 milljónir evra.

Það væri gott að eiga hlutabréf í þessu félagi það er greinilega á góðri siglingu og með hlutina í lagi.


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Gunnarsdóttir

velkomin í bloggvinahópinn

Kristín Gunnarsdóttir, 3.9.2008 kl. 09:49

2 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Uss það borgar sig ekki einu sinni að hugsa út í það.
Kveðjur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 3.9.2008 kl. 16:42

3 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

Þetta er líklega eina herfang S hópsins sem er að gera eitthvað af viti . Enda ætla þeir að borga sæmilegan arð til að stiðja sig við í Existu eða Kaupþingi eða Samskipi eða..eða...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 4.9.2008 kl. 09:43

4 Smámynd: Hafsteinn Viðar Ásgeirsson

og þeir ætla að sjálfsögðu að STYÐJA sig...við arðgreiðsluna..sorry...

Hafsteinn Viðar Ásgeirsson, 4.9.2008 kl. 09:47

5 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þakka þér fyrir Kristín, en eins og sést á síðunni er ég búinn að vera hér frá júní 2007.

Auðvitað vilja þeir hafa eitt af sínum fyrirtækjum í lagi, Hafsteinn.  Það er öllu verra með Gift ehf. sem stofnað var upp úr Eignarhaldsfélagi Samvinnutrygginga og átti að skipta hlutabréfunum á milli þeirra sem tryggðu hjá Samvinnutryggingum á ákveðnu tímabili.  Það félag er með bullandi taprekstur og eigið féð að verða búið.  Ég átti þarna rétt en hef ekkert hlutabréf fengið ennþá, þótt því hefði verið lofað að yrði gert í október 2007.  En í dag skiptir það engu máli því hlutabréfin eru verðlaus.  Þessir sjálfskipuðu forsvarsmenn með Finn Ingólfsson í fararbroddi eru búnir að hirða allt verðmæti úr Gift. ehf.

Jakob Falur Kristinsson, 4.9.2008 kl. 11:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband