Neyðarkall

Mynd 474324Landhelgisgæslunni barst í nótt neyðarskeyti frá Cospas Sarsat gervihnattakerfinu og var skeytið á flugvélatíðni en sendar í kerfinu eru bæði í bátum og flugvélum. Flugvél heyrði merkið um tíma.

Þar sem ekkert fannst og ekki er saknað flugvélar, báts eða annars er líklegt að einhver sendir hafi farið óvart í gang við eitthvert hnjask.  Hinsvegar finnst manni að ef slík tæki fara óvart í gang eigi að tilkynna um það.  En kannski hefur enginn orðið var við að svona tæki hefur farið í gang.


mbl.is Þyrlan leitaði í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

hvað er málið ?

það bárust hljóðmerki og því betra að leita af sér allann vafa ekki satt

Jón Snæbjörnsson, 8.9.2008 kl. 09:48

2 identicon

Það eru víst til einhver dæmi um að slíkir neyðarsendar hafi farið í gang af sjálfu sér og við þannig tilvik geta sjómenn ekki áttað sig á því.

Guðmundur 8.9.2008 kl. 10:00

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er vonlaust að leita ef enginn veit að hverju er verið að leita.

Jakob Falur Kristinsson, 8.9.2008 kl. 16:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband