Ljósmæður

Mynd 458834 Fimm börn komu í heiminn á fæðingadeild Landspítalans í Reykjavík í nótt, og gekk allt að óskum þrátt fyrir verkfall ljósmæðra, sem hófst í gærkvöldi. Undanþága var fengin fyrir þrjár ljósmæður til viðbótar þeim fjórum sem voru á vaktinni.

Það er greinilegt af þessari frétt að ráða, að ljósmæður gera allt sem þær geta til að ekki skapist neyðarástand vegna barnsfæðinga. 

Hvers vegna í ósköpunum semur ríkið ekki við þessa stétt, svo eðlilegt ástand verði komið á aftur.  Í gær var samþykkt á Alþingi frumvarp um sjúkratryggingar og í þeim lögum er beinlínis bannað að semja við stéttarfélög.  Aðeins má semja við verktaka og samkvæmt því verða allar ljósmæður að gerast verktakar, þótt augljóst sé að það mun verða dýrara fyrir ríkið.  Ég ætlaði ekki að trúa mínum eigin eyrum þegar ég hlustaði á þingmenn Samfylkingar verja þetta frumvarp og samþykkja síðan.  Hér er brotið blað í samskiptum ríkisins og stéttarfélaga þegar öðrum aðilanum er bannað með lögum að semja við hinn.  Nú er búið að festa í lög að það verður aldrei samið við ljósmæður sem stéttarfélag.  Hvað kemur næst, ætli það verði ekki bara alfarið bannað að semja um kaup og kjör við öll stéttarfélög.


mbl.is Fimm börn í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband