Impregilo

Rökstuðningur Árna Mathiesen fjármálaráðherra í svörum hans við óundirbúinni fyrirspurn vegna skuldar íslenska ríkisins við Impregilo stangast á við úrskurði dómstóla.

Það mun hafa verið ríkisskattstjóri sem felldi þann úrskurð að Impregilo ætti að standa skil á staðgreiðslu starfsmanna.  Þarna er bæði um að ræða staðgreiðslu sem dregin var af launum og áætlanir og er fjárhæðinn kominn í 1,5 milljarð.  Hæstiréttur felldi hinsvegar ákvörðun ríkisskattstjóra úr gildi.

Því er ég hissa á fjármálaráðherra að fullyrða að krafa Impregilo stangist á við úrskurð dómstóla.  Ég held að ráðherra væri hollt að lesa dóm Hæstaréttar svo svör hans væru sannleikanum samkvæm.


mbl.is Segir endurgreiðslukröfu Impregilo óljósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Villi Asgeirsson

Það að hann skilji ekki hvernig starfsmannaleigur virka er ótrúlegt. Ég er ekki alveg viss hvað hann er að gera sem fjármálaráðherra. Er hann besti maðurinn í starfið? Höfum við ekki betra fólk í landinu, eða er það fólk í öðrum flokkum?

Villi Asgeirsson, 12.9.2008 kl. 08:39

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það virðist vera margt sem Árni ekki skilur eins og deilan við ljósmæður sannar.

Jakob Falur Kristinsson, 13.9.2008 kl. 05:52

3 Smámynd: Villi Asgeirsson

Jamm, sumir geta kúkað í tvær bleyjur í einu.

Villi Asgeirsson, 13.9.2008 kl. 07:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband