RÚV

Helgi Seljan. Í ljósi breytinga hjá RÚV og brotthvarfs Elínar Hirst sem fréttastjóra Sjónvarpsins rifjast upp saga þegar sviptingar áttu sér stað í Efstaleitinu fyrir rúmum þremur árum. Ungur blaðamaður frá DV að nafni Helgi Seljan fékk það hlutverk að reyna fiska fréttir um Auðun Georg Ólafsson og mótþróa innanhúss gegn ráðningu hans sem fréttastjóra Útvarps hjá RÚV.

Eins og margir muna sjálfsagt þá afþakkaði Auðunn Georg stöðuna svo þetta hefur aldrei náð því að verða frétt.  Ekki veit ég hvort þessi breyting verði til góðs en ég sé alla veganna eftir Elínu Hirts.


mbl.is Hljóðritaði fund, falinn undir borði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Promotor Fidei

Mikið ofboðslega fara þær í taugarnar á mér, svona gjörsamlega innihaldslausar bloggtengingar í fréttir. Þyrstir þig svona rosalega í athygli?

Það þykir yfirleitt ekki til marks um gáfur að taka til máls ef maður hefur ekkert að segja.

Promotor Fidei, 17.9.2008 kl. 15:00

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Það er heldur ekki mark um gáfur að telja sig yfir aðra hafinn og vita allt best.  Ef mín skrif fara svona ofboðslega í taugarnar á þér til hvers ertu þá að lesa mína síðu.  Mig þyrstir ekkert í neina athygli og allra síst frá þér.

Jakob Falur Kristinsson, 18.9.2008 kl. 06:17

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég gleymdi að bæta einu við að ég hef skrifað ótal greinar án nokkurrar tengingar við fréttir.  En hvað með þig?

Jakob Falur Kristinsson, 18.9.2008 kl. 06:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband