Ásdís Rán

Ásdís RánÁsdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta er nú á batavegi eftir uppskurð sem hún gekkst undir í Búlgaríu um helgina. Ásdís greindist með æxli í kviði sem rofið hafði gat á eggjastokk en það leiddi til töluverðra innvortis blæðinga, eins og lesa mátti um í Morgunblaðinu og mbl.is í gær.

Hún má nú bara þakka fyrir að vera á lífi og auðvitað á hún að fara að ráðum lækna, þótt það kosti það að hún missi af einhverri keppni.  Fólk kann aldrei að meta góða heilsu fyrr en það lendir í einhverju áfalli sjálft.

Hundrað þúsund sinnum hef ég hugsað um hvað lífið væri gott ef ég væri ekki fatlaður öryrki eftir slys.


mbl.is Ásdís Rán tekur það rólega næstu mánuði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Amen við því... Því miður þarf oft slys til að maður átti sig á því hvað maður var heppinn að eiga hrausta sál í hraustum líkama... Ég missti mína starfsgetu eftir líkamsárás og er bara hálf kona á eftir, þó ekki í bókstaflegri merkingu, en met heilsuna betur eftir að ég missti hana... súrt en satt...

Hvað Ásdísi varðar, þó kjarnakona sé, þá skiptir heilsan meira máli en milljón dollarar.. Eins og hún er öflug þá gæti hún alveg skrapað þeirri upphæð saman með vinnu EF hún fer vel með sig...

Eigðu góðan dag!

Kristín 17.9.2008 kl. 15:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband