Lækkun á olíu

Mynd 469656Verð á hráolíu er komið niður fyrir 90 dali tunnan í rafrænum viðskiptum á NYMEX markaðnum. Um er að ræða viðskipti með olíu til afhendingar í nóvember. Lækkaði hráolíuverð um 3,43 dali tunnan í morgun og fór í 89,96 dali tunnan. Það hefur hins vegar hækkað lítillega á ný og er 90,45 dalir tunnan. Verð á Brent Norðursjávarolíu til afhendingar í nóvember er nú 86,55 dalir tunnan og hefur lækkað um 3,70 dali í rafrænum viðskiptum í Asíu í morgun.

Ætli svona fréttir fari ekki algerlega framhjá íslensku olíufélögunum.  Þeir segja einfaldlega olían hækkar öruggleg aftur og koma með eina hækkun í viðbót.


mbl.is Hráolíuverð niður fyrir 90 dali
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Breytir voða litlu fyrir okkur ef krónan heldur áfram að sökkva eins og steinn.

Úlfar 6.10.2008 kl. 08:45

2 Smámynd: The Critic

Ísland er að verða olíulaust og því þarf að hækka verðið, það mun verða barist um síðustu dropana og fólk hvatt til að hamstra olíu.

The Critic, 6.10.2008 kl. 09:10

3 Smámynd: Birna M

Varla hægt að ætlast til mikilar lækkunar núna eins og gengið er búið að falla. Liggur við að maður sé farinn að gera eins og faðir minn í allsherjarverkfallinu í gamla daga. Leita að stað til að geyma allt hamstraða bensínið. Hann gróf það í jörð við húsið okkar.

Birna M, 6.10.2008 kl. 11:00

4 Smámynd: egvania

 Okkar olía lækkar aldrei svo mikið að sambærilegt megi teljast því sem að gerist erlendis.

egvania, 6.10.2008 kl. 19:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband