Icesave

Þóra Hilmarsdóttir „Fólk er mjög reitt og hissa, að fá hvergi upplýsingar um hvað verður um peningana þess,“ segir Jóna Hálfdánardóttir, sem búsett er í Amsterdam í Hollandi. Um 120 þúsund Icesave-reikningseigendur eru í Hollandi og segir Jóna að fjöldi þeirra ætli að höfða mál gegn Landsbankanum.

Þetta eru ósköp eðlileg viðbrögð hjá þessu fólki og íslenska ríkið getur aldrei komist hjá að standa skil á peningum þessa fólks.  Ef við gerum það ekki verður Íslandi útskúfað úr samfélagi siðaðra þjóða.


mbl.is Mikið fjallað um Icesave erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

...í útlöndum er ekkert skjól, eilífur stormbeljandi, kvað skáldið.  Virðist eiga vel við nú í peningaharðlífi krepputíma.

  Þakka þér vinarkveðjuna, smellti þér í hópinn.

Sigríður Sigurðardóttir, 10.10.2008 kl. 13:18

2 Smámynd: Ómar Ingi

Úfff

Ljótt er þetta

Ómar Ingi, 10.10.2008 kl. 18:16

3 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sæll Jakob. Þetta fólk á alla mína samúð. Óvissa um sparifé sem geymt er á venjulegum innlánsvöxtum án áhættu á að vera tryggt. Annað er bein hvatning til óhófseyðslu eins og við munum hana á verðbólgutímum án verðtryggingar (fyrir 1979). Ég held að verið sé að semja um þetta fé og þetta verði í góðu lagi svo ekki þurfi að koma til málsóknar hjá þessu fólki. kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 12.10.2008 kl. 11:46

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sem betur fer er verið að semja um þessa reikninga, svo þetta mun allt bjargast.

Jakob Falur Kristinsson, 13.10.2008 kl. 08:58

5 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

 Já einmitt kveðja til þín Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 13.10.2008 kl. 15:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband