Ofurlaun

Vegfarandi gengur fram hjá banka í City í Lundúnum. Á meðan þjóðarleiðtogar deila um leiðir til að koma í veg fyrir fjármálahrun virðast breskir stjórnmálamenn og fréttaskýrendur þó sammála um eitt: Tími risabónusa fyrir starfsmenn banka og fjármálafyrirtækja er liðinn – að minnsta kosti í bili.

Auðvitað er sá tími liðinn að menn fái ofurlaun, því það eru engir peningar til að greiða þau.  En þau koma aftur verið viss, það hægir aðeins á í bili en svo fer sama vitleysan af stað aftur.


mbl.is Tímar ofurlaunanna liðnir?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ómar Ingi

Við skulum vona að einhver hafi nú lært að reynslunni

Ómar Ingi, 13.10.2008 kl. 20:30

2 Smámynd: Rósa Aðalsteinsdóttir

Sæll Jakob minn.

Tek undir með Ómari og vona að þessir stórlaxar hafi lært af reynslunni.

Guð veri með þér á þessum umrótartímum.

Kær kveðja/Rósa

Rósa Aðalsteinsdóttir, 13.10.2008 kl. 23:09

3 Smámynd: Jóna Kolbrún Garðarsdóttir

Stórlaxarnir taka sér bónusa, starfslokasamninga og ofurlaun.  Hver annar ætti að skammta þeim launin? 

Jóna Kolbrún Garðarsdóttir, 14.10.2008 kl. 01:33

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Nei þessir menn hafa ekkert lært af reynslunni, því miður.

Jakob Falur Kristinsson, 14.10.2008 kl. 10:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband