Þegar kýrin man ekki að hún var eitt sinn kálfur.

Þessi orð komu mér í hug þegar ég hlustaði á Jón Baldvin í Silfri Egils í gær.  Jón Baldvin talaði eins og hann hefði aldrei komið nálægt stjórnmálum.  Ég man ekki betur en hann hafi stofnað svokallaða Viðeyjarstjórn með Davíð Oddssyni 1991 og þá var fjárálshyggjan sett á flug og öllu átti að bjarga og afleiðingin er sú eins og Jón Baldvin sagði; "Ísland er eins og strandað skip sem berst stöðugt í grjótið." og varla hægt að bjarga neinu. En nú kunni Jón Baldvin ráð við öllu og út úr honum vall rugl og tóm steypa.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigríður Sigurðardóttir

  Já, merkilegt þetta "minnisleysi" stjórnmálamanna.  Þar sem ég vinn væri svona lélegt minni ávísun á sjúkdóma á borð við elliglöp og Alzheimers.  En þykir svo bara "eðlilegt" hjá stjórnmálamönnum, núverandi jafnt sem fyrrverandi.

Sigríður Sigurðardóttir, 20.10.2008 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband