72 milljarðar

Icesave-netreikningur LandsbankansLárus Finnbogason, formaður skilanefndar Landsbankans, sagði á fundi með kröfuhöfum bankans í dag að samkvæmt útreikningum nefndarinnar myndu um 72 milljarðar króna lenda á íslenska ríkinu, og þar með skattborgurum, vegna Icesave-reikninganna.

Það munaði ekki um það 72 milljarðar sem skattgreiðendur eiga að greiða.  Núverandi kynslóð verður öll kominn undir græna torfu áður en búið verður að borga þetta allt og sennilega næsta kynslóð líka.  Hvernig dettur þessum mönnum í hug að vera að semja um greiðslur á svona skuldum sem vita vonlaust er að standa við.  Þau rök eru sett fram að þetta verði að borga til að Ísland fái trúverðugleika á ný á erlendum fjármálamörkuðum.  En þurfum við nokkuð á því að halda eða er ætlunin að halda áfram í erlendum lántökum.  Ég hefði haldið að komið væri nóg í bili.


mbl.is Segja Icesave kosta ríkið 72 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þetta er nú bara 230.000.-kr á haus, lágmarksmánaðarlaun verkamanna, það tekur nú ekki mörg ár né áratugi að greiða það?

Geir 20.2.2009 kl. 20:06

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Ég gleymdi að bæta þarna við óhóflegum erlendum lántökum.  Hinsvegar er það mín skoðun að ef við getum ekki rekið okkar þjóðfélag eða fyrirtæki nema með erlendum lánum þá er sjálfstæðið farið.  Við verðum einfaldlega að sætta okkur við að lifa á þeim tekjum sem við öflum.

Jakob Falur Kristinsson, 21.2.2009 kl. 10:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband