Bréf

Medvedev heilsar Jóhanni Karli, Spánarkoningi, í...Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sendi Dmitrí Medvedev, forseta Rússlands, leynilegt bréf fyrir þremur vikum. Var sérstakur sendiboði látinn afhenda Rússlandsforseta bréfið sem fjallaði um kjarnorkuvæðingu Írans.

Til hvers er Obama að senda forseta Rússlands bréf?  Veit hann ekki að forsetinn ræður engu í Rússlandi heldur er það Pútín sem öllu ræður.  Forsetinn er aðeins leppur þar til Pútín má bjóða sig fram aftur sem forseti.


mbl.is Obama sendi Medvedev leynilegt bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Og hveru "leynilegt" er þetta bréf, fyrst við getum lesið um innihald þess á mbl.is? Hljómar frekar eins og einhverskonar áróður...

Guðmundur Ásgeirsson, 3.3.2009 kl. 10:49

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Góður punktur.  Leynilegt bréf sem lesa má í Morgunblaðinu.

Jakob Falur Kristinsson, 3.3.2009 kl. 11:15

3 identicon

Eins og það sé eitthvað slæmt að Putin stjórni Rússlandi. Manninum tókst það sem stjórnvöldum hérna hefur ekki tekist.. að svipta eigur siðblindra auðmanna.

Einnig má sjá smá klúður hjá mbl "...en þeir hafa einnig veitt Írökum aðstoð við að reisa kjarnorkuver."

Svo væri líka fínt ef Íran hefði nokkrar kjarnorkuflaugar, þá myndi allavena skapast jafnvægi þarni í miðausturlöndum. Ótrúlegt að Ísrael skuli vera þeir einu sem fá að hóta öllum..

Örn 3.3.2009 kl. 16:43

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Jafnvægi næst ekki með kjarnorkuvopnum, heldur getur komið af stað hryllilegum atburðum sem við munum ekki sjá fyrir um endann á.

Jakob Falur Kristinsson, 3.3.2009 kl. 18:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband