Hættir störfum

Haukur Björnsson er að hætta störfum sem framkvæmdastjóri Eskju hf. eftir að hafa unnið hjá félaginu í fjöldamörg ár. Haukur hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra síðan 2004 en hefur ákveðið að snúa sér að öðru.

Þetta er eitt þeirra fyrirtækja sem byggir afkomu sín að mestu á veiðum og vinnslu uppsjávarfisks og eins og staðan er núna með loðnuna þá hlýtur að vera erfið staða hjá Eskju hf.  Ætli það sé ekki ástæðan fyrr uppsögninni.  Eins er þetta mjög skuldsett fyrirtæki, því fyrir nokkrum árum fór Aðalsteinn barnabarn Alla ríka (Stofnanda fyrirtækisins), sem var þá forstjóri út úr fyrirtækinu með sinn hlut eða nokkra milljarða.  Þann hlut keyptu Þorsteinn Kristjánsson tengdasonur Alla ríka og fjölskylda hans og þurftu þá að skuldsetja félagið talsvert mikið.  Þorsteinn hefur til margra ára verið skipstjóri á flaggskipum Eskju hf. en sest nú í forstjórastólinn.  Þetta er lýsandi dæmi um það sem hefur verið að ske í íslenskum sjávarútvegi vegna verðlagningu á aflaheimildum.  Þannig að menn hafa farið út úr greininni og orðið milljarðamæringar fyrir það eitt að hafa erft hlutabréf í fyrirtækjum sem hafa haft yfir að ráða aflaheimildum, sem eru í raun í eigu íslensku þjóðarinnar.


mbl.is Framkvæmdastjóri Eskju hættir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: egvania

egvania, 10.3.2009 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband