Lækkun á eldsneyti

Mynd 471034 Bensínorkan lækkar í dag bensín um 2 krónur og díesel um 2,6 krónur. Almennt verð á bensíni verður þá 139,70 krónur og almennt verð á díesel 149,90 lítrinn. Þrjú olíufélög hafa því tilkynnt um verðlækkun á eldsneyti í dag.

Eru þeir hætti að fylgjast með hjá Olíufélögunum?  Eð eitthvað ruglaðir?  Því í gær var frétt um hækkun á heimsmarkaðsverði á olíu.  Samkvæmt venju hefðu nú flest félögin stokkið á þetta og hækkað verðið, en þá kemur lækkun.  Annars eru vinnubröð þessara félaga við verðlagningu, flestum óskiljanleg.


mbl.is Fleiri boða eldsneytisverðlækkanir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

þetta er samráð lækkun núna upp á 2 krónur svo hækkar þetta um 6-8 krónur um helgina, svona fara þessi Samráðsfélög að þessu, plata neytendur, þetta hefur tímabundið áhrif á verðbólguna fyrst jákvætt síðan neikvætt

Tryggvi Bjarnason 12.3.2009 kl. 11:14

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Sammála.

Jakob Falur Kristinsson, 12.3.2009 kl. 11:25

3 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Þó að hráolía hafi hækkað í gær þá hefur það ekki svo bein áhrif á bensínverð að það komi fram við dæluna strax daginn eftir. Þessi lækkun skýrist líklega frekar af styrkingu krónunnar, sem hefur verið nær samfelld frá áramótum, en ljóst er að neytendur eiga samt heimtingu á meiri lækkun en þetta. Það sem heldur á móti verðlækkunum er líklega skuldastaða og vaxtabyrði olíufélaganna sjálfra. Það mun ekki breytast fyrr en eftir búið verður að setja í þrot þau sem verst standa, og hinir sem eru lífvænlegir fá sinn réttmæta skerf af markaðnum.

Guðmundur Ásgeirsson, 12.3.2009 kl. 12:22

4 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Olíufélögin hafa nú lýst því yfir að verð hér á landi taki alltaf gild við breytingu á heimsmarkaðsverði.  Hitt er alveg rétta þessi félög eru mjög skuldsett og því vaxtagreiðslur miklar.  Besta dæmið um þetta er Skeljungur sem er nánast gjaldþrota, en núverandi eigendur keyptu fyrirtækið af einhverjum bankanna í fyrra og allt fyrir lánsfé.

Jakob Falur Kristinsson, 13.3.2009 kl. 09:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband