Engir peningar til

Nú er erfitt hjá stjórnvöldum hvað varðar fjármál og er nú svo komið að ríkið skuldar tvöfalda landsframleiðslu sína.  En talið er að þetta hlutfall eigi helst ekki að fara yfir 70% af landsframleiðslu en hér er það 200%.  Nú reynir á velferðarkerfið og menntakerfið sem eru einna stærstu útgjöldin.  Því vaknar sú spurning hvort við verðum ekki að loka hluta skólakerfisins og fækka gömlu fólki og öryrkjum.  Það yrði auðvitað ekki gert nema að taka þetta fólk af lífi og væri nú kannski ekki mjög siðlegt en það er hægt að gera þetta löglegt með lögum frá Alþingi.  Þetta hleypti líka einhverjum krafti í atvinnulífið, prestar hefðu nóg að gera og svo þarf líka að smíða líkkistur og jarða fólkið.  Þetta yrði auðvitað að gera mannúðlega.  Ég er öryrki og tæki því alveg þegjandi þótt ég þyrfti að mæta einhversstaðar og fá eina sprautu og allt væri búið. 

Nema að ég gengi aftur og yrði draugur, þá færi í verra, fyrir marga.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

200% er besta tilfellið.   kíktu á útreikninga á

 http://andrigeir.blog.is/blog/andrigeir/entry/831626

Andri Geir Arinbjarnarson, 18.3.2009 kl. 14:17

2 identicon

þú seigir það

asgeir 18.3.2009 kl. 18:22

3 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Já og ég er ekki að grínast, heldur full alvara.

Jakob Falur Kristinsson, 18.3.2009 kl. 22:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband