Vottun sjávarafurða

Með nýja íslenska umhverfismerkið. Dr. Kristján...„Við reiknum með að fyrstu afurðirnar úr vottuðum stofnum muni koma á markað eftir rúmt ár,“ segir dr. Kristján Þórarinsson, stofnvistfræðingur hjá LÍÚ um nýtt umhverfismerki fyrir íslenskan fisk. Kostnaður ríkisins við þróun þessa merkis fyrir útgerðarfyrirtækin gæti orðið 23 milljónir króna.

Þetta  semsagt að taka heilt ár.  Mér er með öllu óskiljanlegt af hverju við tókum ekki upp hið alþjóðlega vottunarkerfi MSC, sem hefði ekki kostað okkur neitt og tekið strax gildi.  En LÍÚ valtað einu sinni enn yfir Sjávarútvegsráðherra Einar K. Guðfinnsson og var ákveðið að haf sér merki fyrir Ísland.  Rökin hafa verið þau að samtökin MSC þóttu of friðunarsinnuð.  Hvílíkt andskotans rugl.  Hvernig á merki frá Íslandi að keppa um hylli kaupenda að sjávarafurðum við MSC, sem nær allir kaupendur þekkja vel til.  Þetta rugl dregur bara úr sölu á íslenskum fiski.


mbl.is Ár þar til þorskurinn verður vottaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband