Íslenskar vörur

Baldvin Jónsson.Baldvin Jónsson, framkvæmdastjóri verkefnisins Áforms um markaðssetningu á íslenskum vörum í Bandaríkjunum, segir afleitt að verslanakeðjan Whole Foods Market hyggist draga úr kynningu á íslenskum vörum vegna þeirrar ákvörðunar fyrrverandi sjávarútvegsráðherra að heimila takmarkaðar hvalveiðar.  Þetta er talsvert skrýtin afstaða því Bandaríkin veiða mun meira en við Íslendingar af hval og réttlæta það með svokölluðum frumbyggjarétti.

Ekki trúi ég að hvalveiðar Íslands hafi þessi áhrif sem Baldvin lýsir heldur er alltaf verið að reyna að selja lambakjöt í heilum skrokkum sem þessar verslanir vilja ekki, þær vilja fá kjötið unnið meira hér á landi.  Það kemur líka fram hjá Baldvin að stöðug aukning sé á sölu á íslensku skyri og um mitt ár 2010 verði íslenskt skyr til sölu í öllum verslunum Whole Foods Markets.  Einnig er stöðugur vöxtur í sölu á bleikju frá Íslandi.

Þannig að hvalveiðar draga ekkert úr sölu á íslenskum vörum í Bandaríkjunum.


mbl.is Ákvörðun keðjunnar vonbrigði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband