Sparnaður

Svandís Svavarsdóttir borgarfulltrúi VG segir borgaryfirvöld hygla byggingaverktökum á kostnað skólabarna. Borgin ætli að hækka leikskólagjöld og draga úr kennslu meðan verktakar fái fimmhundruð milljónir í verðbætur vegna kreppunnar. Formaður borgarráðs segir borginni forðað frá málaferlum.

Alltaf finnur íhaldið leið til að hygla að sínum, svo eru að koma kosningar þá er auðvitað ekki hægt að láta þessa kalla vera peningalausa.  Kosningarsjóðirnir þurfa sitt.  Fólk getur auðveldlega sloppið við að greiða leikskólagjöld með því að hætta að eignast börn.  Annars var ég að lesa viðtal við Kjartan Magnússon (D) varðandi leikskólagjöldin og hann sagði að þetta væri alveg í samræmi við áætlanir sem gerðar hefðu verið.

Hvernig geta verktakar krafist aukagreiðslu frá borginni vegna kreppunnar, gerðu þessir verktakar ekki ákveðin tilboð sem þeir verða að standa við eða var samið bak við tjöldin um þessar aukagreiðslur.  Það hefur aldrei verið hagstæðara en í dag að fá verktaka til að bjóða í verk og útboð Vegagerðarinnar sýna að slegist er um hvert útboð.  Þannig að þetta er nú frekar ódýr afsökun hjá Óskari Bergssyni.


mbl.is Verktakar fram fyrir skólabörn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband