ASÍ

Gylfi Arnbjörnsson setur aukaársfund ASÍ 25. mars sl. Miðstjórn ASÍ telur nauðsynlegt að settar verði siðareglur um fjárfestingar lífeyrissjóða og fyrirmyndareglur um daglega starfsemi þeirra, þ.m.t. starfskjör, gjafir, risnu og ferðalög, og þær verði kynntar fyrir ársfundi lífeyrissjóðanna. Miðstjórnin segist harma þann fréttaflutning og framsetningu sem fjölmiðlar hafi kosið að nota í umfjöllun um málefni lífeyrissjóðanna, þar sem stjórnir og starfsmenn þeirra séu ómaklega ásökuð um refsiverða framsetningu ársreikninga og réttinda sjóðsfélaga.

Komin tími til að hreins aðeins til í þessu kerfi.  Það þýðir lítið fyrir þessa höfðingja að harma fréttaflutning af málefnum lífeyrissjóðanna.  Þessar fréttir eru bara um hvernig menn hafa hagað sér, sem stjórna þessum sjóðum.  Eða finnst þeim ekki neitt fréttnæmt við að laun forstjóra sjóðanna séu tugir milljóna á ári auk ýmissa hlunninda.


mbl.is ASÍ vill siðareglur um lífeyrissjóði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Ég tel að einhverjar siðareglur, fyrir lífeyrissjóðina, séu eins og dropi í helvíti.  Það dugar ekkert nema almennileg uppstokkun á þessu kerfi eins og staðan er orðin.

Jóhann Elíasson, 1.4.2009 kl. 18:33

2 Smámynd: Jakob Falur Kristinsson

Þar er ég þér sammála Jóhann.

Jakob Falur Kristinsson, 1.4.2009 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Jakob Falur Kristinsson
Jakob Falur Kristinsson

Ég er fyrrverandi vélstjóri og útgerðarmaður en er nú 75% öryrki eftir slys á sjó 2003. Bjó lengst af á Bíldudal en flutti til Sandgerðis haustið 2005.  En er nú aftur fluttur á Bíldudal.  Að svo miklu leyti sem myndir á síðunni eru eftir Mats Wibe Lund, þá liggur fyrir tímabundið samþykki hans um birtingu hjá mér og þakka ég honum sérstaklega fyrir.  Mats á að sjálfsögðu hönundaréttin að öllum sínum myndum.  Vilja menn sjá fleiri myndir þá vísast á www.mats.is  Ég  var flokksbundinn í Frjálslynda flokknum og hef starfað þar, en sagði mig úr flokknum 24. apríl og gekk í Samfylkinguna.  Föðurætt mín er úr Arnarfirði og móðurættin frá Jökulfjörðum og Hornströndum og í báðum tilfellum, langt aftur í aldir.  Er ég því ekta Vestfirðingur.

Undir fyrirsögninni Færsluflokkar er flokkur sem heitir Vefurinn og ef smellt er á hann opnast síður þar sem ég er að skrifa ýmsar frásagnir.  Einnig er undir liðnum spaugilegt smá grín ofl. 

Ég leyfi öllum að skrifa athugasemdir við mín skrif.   En af gefnu tilefni hef ég ákveðið að þeir sem ekki kunna sér hófs í athugasemdum og nýta þær til persónulegra árása á mig og mína persónu, með allskonar skömmum og svívirðingum, mun ég hér eftir loka á slíka aðila.  Einnig mun ég henda út nafnlausum athugasemdum.  Því ég einn ber ábyrgð á því sem skrifað er á mína síðu.

jakobkr@internet.is     

GSM: 823-2954

Bloggvinir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband